Ísland
Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám á Íslandi
Spurningar og svör
- 1. Hvernig fær maður íslenska kennitölu?
- Sækja má um íslenska kennitölu hjá Þjóðskrá. Nánari upplýsingar og eyðublöð má finna á heimasíðu Þjóðskrár (www.thjodskra.is).
- 2. Er nauðsynlegt að flytja lögheimili sitt ætli maður að búa á Íslandi um tíma?
- Þeir sem flytja til Íslands frá Norðurlöndunum og ætla að búa og starfa á Íslandi lengur en 6 mánuði, verða að flytja lögheimili sitt til landsins. Það gera þeir með því að fara annað hvort til Þjóðskrár eða á sveitarfélagsskrifstofu síns heimahéraðs, og tilkynna flutning. Framvísa þarf persónuskilríkjum við skráninguna. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Þjóðskrár (www.thjodskra.is) Þeir Norðurlandabúar sem áforma að starfa á Íslandi skemur en sex mánuði þurfa ekki að flytja lögheimili sitt.
- 3. Ég er ein með forræði yfir 12 ára syni mínum, sem flyst með mér frá Noregi til Íslands. Þarf ég að hafa með einhverja pappíra sem sýna fram á þetta?
- Já, þess er krafist að foreldrar sýni fram á pappíra þess efnis að þeir séu einir með forræði barns undir 18 ára aldri eða afhendi vottað samþykki þess foreldri sem ekki flytur um að leyfilegt sé að flytja lögheimili barnsins.
- 4. Hvernig er best að finna leiguhúsnæði á Íslandi?
- Algengast er að finna húsnæði gegnum auglýsingar í dagblöðum til að mynda (www.mbl.is) og (www.visir.is). Á landsbyggðinni getur verið gott ráð að skoða auglýsingar í héraðsfréttablöðum. Auk þess eru starfandi nokkrar leigumiðlanir. Þar er til dæmis hægt að skoða eftirfarandi heimasíður:
• www.leigunet.is
• www.leiga.is
• www.arsalir.is
• www.leigulistinn.is
• Eiga norrænir námsmenn rétt á húsaleigubótum?
Já, norrænir námsmenn eiga rétt á húsaleigubótum á Íslandi að því tilskildu að þeir hafi flutt lögheimili sitt til Íslands og séu með þinglýstan leigusamning.
- 5. Gildir sænskt ökuskírteini á Íslandi?
- Já, sænskt ökuskírteini gildir á Íslandi. Ekki er því þörf að sækja um íslenskt skírteini þótt fyrirhugað sé að dvelja til lengri tíma í landinu.
- 6. Er mögulegt í einhverjum tilfellum að keyra um á erlendum skráninganúmerum á Íslandi?
- Ferðamenn og aðrir sem dvelja hér á landi tímabundið, til að mynda námsmenn eða starfsmenn sem vinna í styttri tíma, sækja um sérstakt leyfi til tollayfirvalda til þess að fá að keyra á erlendum skráningarnúmerum. Leyfið er veitt í afmarkaðan tíma í senn en mögulegt er að endurnýja leyfið, þó aldrei til lengri tíma en eins árs. Uppfylla þarf ákveðin skilyrði til að leyfið sé veitt, til að mynda þarf innflytjandi ökutækisins að hafa verið búsettur erlendis áður en komið er til landsins, ökutækið þarf að vera skráð erlendis og innflytjandi skráður fyrir því og eins þarf vátrygging að gilda á Íslandi. Taka ber fram að ekki mega líða meira en 30 dagar milli komu innflytjanda og ökutækis til landsins. Sótt er um leyfið til tollstjóra á innflutningsstað.
- 7. Er innflutningur á ökutækjum tollfrjáls ef innflytjandi hefur búið erlendis í meira en eitt ár?
- Nei, en tollstjóra er heimilt að veita leyfi til innflutnings bifreiða og bifhjóla í allt að einn mánuð talið frá komu flutningsfars ökutækis til landsins. Að þeim tíma liðnum þarf að vera búið að greiða lögboðin aðflutningsgjöld.
- 8. Þarf að skila inn passamynd til að fá íslenskt bankakort?
- Ráðlagt er að hafa samband við viðskiptabanka til að kanna þetta. Á flestum greiðslu- og bankakortum er mynd af handhafa, en þetta er ekki algilt. Í sumum tilfellum býður bankinn upp á passamyndatökur á fyrirfram auglýstum tímum.
- 9. Hver er algengur biðtími eftir leikskólaplássi?
- Biðtími er misjafn eftir sveitarfélögum og atvinnuástandi hverju sinni. Mörg sveitarfélög miða við að börn komist inn á leikskóla við 18 mánaða aldur, en ekki tekst alltaf að verða við því.
- 10. Eru til skólar á Íslandi þar sem kennslan fer fram á öðru tungumáli en íslensku?
- Á Íslandi eru börn skólaskyld frá sex til sextán ára aldurs og fer kennsla almennt fram á íslensku í grunnskólum. Þó er gerð undantekning í nokkrum skólum, þar sem kennslan fer fram á ensku. Einn framhaldsskóli býður upp á kennslu á alþjóðlegri braut eða IB-nám, en þar fer kennsla fram á ensku.
NámVinnaBörn og fjölskylda
Útgefandi:
Ved Stranden 18 1061 København K
Sími:
+45 33 96 02 00
Netfang