Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Ísland
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám á Íslandi

    Upplýsingar fyrir fatlaða

    Félagsleg þjónusta

    Fatlaðir sem þurfa á aðstoð til lengri tíma að halda geta eins og aðrir flutt til annars norræns lands. Samkvæmt 9. grein norræna samningsins um félagslegt öryggi (almannatryggingar) eiga viðkomandi yfirvöld að aðstoða við flutning. Það er á ábyrgð yfirvalda á hverjum stað að sjá til þess að flutningar séu mögulegir, ef:

    • Hinn fatlaði flytur af frjálsum og fúsum vilja.
    • Hinn fatlaði hefur sérstök tengsl til þess lands sem flutt er til.
    • Ef litið er svo á að lífskjör hins fatlaða verði betri í nýja landinu.

    Ef hinn fatlaði lítur svo á að flutningar muni bæta lífskjör hans eða hennar, eru það sterk rök fyrir flutningnum. Mikilvægt er að hafa samband við heimasveitarfélag sitt til að fá aðstoð við flutninginn.


    Lyf

    Norðurlöndin eru aðilar að Schengen-samningnum og hafa því skuldbundið sig til að einfalda reglur um innflutning lyfja.

    Schengen-samstarfið nær til allra ESB-landa (að undanteknum Bretlandi og Írlandi), sem og Noregs og Íslands. Samningurinn tryggir sameiginlegt lyfjavottorð, en það heimilar þeim sem ferðast innan aðildarríkja Schengen-samningsins að flytja með sér lyfjaskammt til allt að 30 daga einkanotkunar frá heimalandi sínu. Frekari upplýsingar um innflutning á lyfjum  til einkanota má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar.


    Liðveisla

    Margir fatlaðir hafa þörf fyrir aðstoð í daglegu lífi. Þetta á auðvitað einnig við um ferðalög og flutninga.

    Við flutninga til lengri tíma frá einu norrænu landi til annars þarf að sækja um styrk hjá nýja heimasveitarfélaginu til að standa straum af kostnaði við persónulega aðstoð. Afgreiðsla umsóknar getur tekið þó nokkurn tíma og því er mikilvægt að hafa samband við nýja sveitarfélagið tímanlega.

    Ef um styttri heimsókn til annars norræns lands er að ræða veitir sveitarfélagið í sérstökum tilfellum styrk til útgjalda við liðveislu á ferðalagi. Við ferðalög, starf eða nám í lengri tíma (allt að sex mánuðum) greiðir sveitarfélagið í heimalandinu einungis í fáum tilfellum fyrir liðveislu. Þú skalt spyrjast fyrir í heimabæ þínum um það hvaða styrkir standa þér til boða.


    Hjálpartæki

    Ekki er unnt að setja fram neinar almennar reglur um inn- og útflutning á hjálpartækjum á Norðurlöndum, þar eð hvort tveggja er undir því komið hvers eðlis sjálft hjálpartækið er. Þar skiptir máli hvort litið er á hjálpartækið sem búslóð, hvort hjálpartækið er fengið með styrk frá hinu opinbera, eða hvort hjálpartækið heyrir undir tollalög í viðkomandi landi og fleira.
    Þeir sem hyggja á búsetu á Íslandi ættu að leita leiðbeininga bæði hjá því norræna sveitarfélagi sem þeir eru búsettir í og því sveitarfélagi á Íslandi, sem þeir hyggjast setjast að í.  Á Íslandi reka Sjúkratryggingar Íslands hjálpartækjamiðstöð.

     

    Þeir sem hyggja á tímabundna dvöl á Íslandi, til að mynda vegna sumarleyfis eða heimsóknar til ættingja, geta flutt með sér hjálpartæki frá öðrum norrænum löndum yfir landamærin.


    Blindrahundar

    Miðað við reglur í öðrum norrænum löndum, eru reglur um innflutning lifandi dýra til Íslands nokkuð strangar. Upplýsingar um innflutning dýra má finna á heimasíðu Matvælastofnunar. Engar undantekningar eru gerðar varðandi innflutning blindrahunda en almennar upplýsingar um innflutning hunda má finna í kaflanum um innflutning hunda og katta.


    Húsnæði

    Möguleikar á úthlutun á hentugu húsnæði fyrir fatlaða við flutning til annars norræns lands eru mismunandi eftir því hvaða sveitarfélags flutt er til, og hvers konar húsnæði hentar viðkomandi einstaklingi

     

    Skynsamlegt er að að hafa samband við nýja heimasveitafélagið áður en flutt er til að kynna sér ástand í húsnæðismálum fyrir fatlaða innan viðkomandi sveitafélags.

     


    Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
    Síðast uppfært 14.06.2010


    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang